|
|
07.01.2008 22:05:52 / -ftw-
 Svo lítið harðarogtöff huh  ? Jæja þá er komið að fyrsta blogginu á sjóðandi heitu ári. Ég er flutt aftur til Ak og er það ágætt en samt hefði ég viljað vera lengur heima, erfitt að rífa sig burt. En vitiði hvað gott fólk það er ekki nóg með það að þetta er fyrsta bloggið mitt á þessu ári heldur er þetta það síðasta líka. Ég held að minn tími sé bara komin, enda á þessi síða núna árs afmæli þakka ykkur fyrir pent. Svo núna er -ftw- lokað þann 7.janúar kl.22:27. FUCK THE WORL mjahah ;D Svo bara takk fyrir mig og góða nótt
ég gífurlega rjómó jámm^^ Gleymdi,, gleðileg jól, gleðilegt nýtt ár, gleðilegan þrettánda, gleðilega páska, gleðilegan fæðingardag, gleðilegan 17 júní og ekkert meira gleiðilegt 
»
04.01.2008 01:04:47 / -ftw-
Jæja smá síðan maður hefur bloggað já ? Þetta blogg verður með öðru sniði en venjulega því þetta er Annállinn minn 2007 Bara svona til að vera þokkalega hreinskilin við ykkur þá man ég mjög lítiið frá Janúar- Apríl, bara lítill úrdráttur, Stakk af til nesk, þunglindi og volæði, grunskóli búið bara. ástæðan af hverju ég man ekki neitt er sú að það er ekkert slúður til síðan þá  Maí Samrændu prófin kláruðust sem maður er búin að vera að kvíða síðan maður byrjaði í skóla. Ég og Hlynur byrjuðum saman og hættum svo saman líka. En þá byrjuðum ég og Alli saman. Hvað skeði meira í þessum mánuðu, Gamli og Sjoni urðu frekar reiðir og tókust pínu á, our Emma litle catfight við Söru Anítu Helgi og Mæja byrjuðu saman.Svo var ekkert meira sérstakt. Júní Í þessum mánuði var byssuvesenið með Helga, Daða og Hlyn þegar löggan böstaði þá. Ingunn mín flutti til Grindavíkur og Helgi hætti með Mæju, Lítið slúðrað þennan mánuðinn  Júlíí Þetta er mánuðurinn þar sem Bjarki fékk nafnið ,Brókibróki piss piss',. Bjössi og Sara Aníta byrjuðu saman. Gauji keypti sinn fyrsta brumma Hilux babe Daníel hryggjaliðs brotnaði í leik. Ég og Alli fórum í bústaðinn til mömmu og pabba og svo á Lunga. Svo voru þessir blessuðu vopnafjarðardagar. Halldór og ég misnotuðum Ingunni í að ná í drasl fyrir okkur, Lára hellti bjór yfir þessa stelpu og helling meira sem ég nenni bara ekki að skrifa  Ágúst Versló var í þessum mánuði og þá fór ég með Alla,Gamla, Sölva og Sigga til Ak. Ingunn fann æxlið sitt. Bjarki fór með stelpu uppáhótel herbergi sem símon og adam voru með og búmm Hið víðþekkta hvervisgrill var haldið og ég held að fólk muni þá mest eftir Láru og Helga dæminu ;D Og svo náttúrulega tókst strákunum að draga Ragga inná sundlaug blindfullan. September Þetta var mánuðurinn þegar Símoni og Adami tókst næstum því að láta reka sig af Laugum eftir 3 daga. Bjössi og Sara hlttu saman, Bjarki fékk á kjamman og braut hurðina á Hlölla (sem er ekki enþá búið að gera við held ég) Gunnar og Egill fóru á sitt fyrsta fillerí og buið. Október Sundlauginni var rústað og komið var upp gæslu, Helgi lamdi svíja, Örvar trúlofaðist, Reynir dúndraði glasi í hausinn á Jimmy, margir vopnfyrðingar lentu í klónnum á Þórgunni og Ómar náði sér í konu. Nóvember Þegar Matti kærasti gerðar tók þátt í Herra Norðurland og Herra ísland. Ég og Alli áttum hálfsárs afmæli og ég var búin að plana eitthvað rosa en mest allt fór svo í vaskkinn haha. Og svo já í þessum mánuði þá stakk Guðjón sig í kviðin og allt það vesen. Desember Mánuðurinn sem var að líða, Bluffi misstisveindóminn! Svo allt dramað á nýársdag með Söru Anítu, Bjössa, Helga og Sveinu. Eitthver minniháttar áflog hjá Steina og Hugó held ég ? Og svo eitthvað meira  Þetta er meira og minna árið sem var að líða, þetta kanski stemmir ekki allt en ég vona að öllu m sé bara nokkuð sama En já ég vil bara þakka öllum fyrir að hafa gert eitthvað af sér á árinu sem var að líða því annars hefði ég aldrei getað haldið þessari síðu gangandi Og góða nótt öll sömul :8 Kristínhjarta
»
22.12.2007 15:20:51 / -ftw-
Góðan dagin góðir landsmenn, ég vil bara byrja á þvi að biðjast afsökunar á hreint og beint lélegum bloggum og leiðinlegum bloggum undan farið. En núna að skemtilegri málum þá eru aðeins tveir dagar til jóla!! Og 4 dagar í alla held ég. Get ekki beðið. Og að enn skemtilegra máli þá erum við Ingunn búnar að vera duglegri en allt tókum til í 7 klst. Þegar ég áttaði mig á þessu ég trúði því ekki. En auðvitað þurftum við að sýna einhv erjum hvað við erum ógeðslega duglegar svo við buðum tvíbbunum í kaffi,kakó,djús og rúsínubollur. Höfðum það aðeins of kósí held ég. Svo droppaði Randver til okkar í pínustund. Randver En þegar þetta var orðið þreytt þá fórum við í party til Manna Símon góður að taka myndir drunk.. Þar hitti ég stelpusem er með mér i skóla og hún vill kalla Bjarka Karíus og Baktus.. langaði þér ekki að vita þetta ?Fínt. En svo fóru Ingunn og Berglind fljotlega en það kom fleira fólk í staðin og þetta var bara asskoti gaman : ) Ætla að slúðra um þetta á eftir  Ég og Bjössi pííínulítið svöl
En já núna er ég aftur að fara að taka til, hvenær hættir þessi vitleisa ? Urrg en þetta er ekki það versta sem gæti komið fyrir býst eg við En alavegna þá er mér ekki til setunar boðið. Kristín<3Alli
»
19.12.2007 14:05:59 / -ftw-
------------------------- ------------------- ------------ ----- --- - Nothing ever goes the way it should ( Lalala syng ég hérna þegar ég er að stelast í tölvuna hans Guðjóns því ég er ábyggielga búin að týna minni.. . Ég veit ekkert hvað ég er að gera hérna. Alli er farinn til rvk og ég svaf heima í nótt sem ég hef bara ekki gert í margar vikur jafnvel mánuði? Það er eitthvað ljótt í herberginu mínu... Fimm dagar í jólin gott fólk, ekki að drepast í spenningi ? Ekki ég, ég kann ekki að fara í jólaskap Gölluð það held ég Ég sakna Alla punktur - --- ----- ------------ ------------------- ------------------------- Kristín<3
»
09.12.2007 21:22:17 / -ftw-
Hæ, ég sit hérna með stírurnar í augunum og velti fyrir mér hvað ég ætti að vera að gera. Ég var að koma niður frá Þórgunni að gera.. veit það ekki hún hefur svo skrítin áhrif á mig. Minnir mig bara á hvað ég var að gera í gær sko. Tjellinginn fór á tælenskan veitingarstað og borðaði hrátt brokkolí með öllum stönglinum á og kína kál. Samt heppnari en Brindís sem át rófur og smokkfisk og hvað þá Þórgunnur með sinn súrsterka réttinn sinn. Ótrúlegt hvað fólk telur annað fólk á hvað er gott? Svo kaffihús í eiginlega 3 klst? Glæsilegt BÍÓ strax eftir á Be Wolf sem er rosalega töff mynd. Allavegna þá erum við að tala um að ég+vopnfirðingastelpurnar+Þórgunnur=við fórum á skauta núna í dag Stelpurnar sögðu að ég ætti svo sannarlega að reina að fikra mér áfram í skautaheiminum, hvað finnst ykkur ? Jii ég er búin að fatta hvað ég á að vera að gera,, eins sjokkerandi og það mun hljóma þá á ég að vera að læra!!! Sjæsinn, það er bara ekkert hægt að einbeita sér þegar maður er að fara að hitta elskulegasta,besta, sterkasta, sætasta, rómantískasta, kynþokkafyllsta, fyndnasta, krúttlegasta kærasta sem til er. 1,5 dagur byrjuð að kikna í hnjánum : ) Við vorum í miklu uppáhaldi þarna í Skatuahöll Akureyrar Kristín<3
»
04.12.2007 19:40:13 / -ftw-
Svoltítið töff Vopnfirðingar á árshátíð Eins og titillinn gefur til kynna þá hata ég snapfish, ömurlegt drasl! Allar myndirnar sem hafa verið á þessari síðu hafa komið frá snapfish en þær virka ekki lengur þannig ég þurfti að eyða öllum myndunum. Mér þótti það mjög sárt . Ég, Ingunn og Þórgunnur klárlega góðar saman
Andrea,ég, Ingunn, Þórgunnur, Berglind og Dagný Svona til að vera algjörlega hreinskilin við ykkur þá var ég bara að blogga til að koma þessum myndum inn BLess. Kristín<3
»
01.12.2007 17:42:29 / -ftw-
Jæja þá er árshátíð MA lokið, þar sem fólk er búið að eyða mörg þúsundum íslenskrar króna í hárgreiðslur, kjóla, jakkaföt, snyrtidót, skó, gervineglur, aukahluti og svitalykta eyði að sjálfsögðu. Þetta var bara mjö fínt að sjá alla þessa nördra koma saman og hrista á sér skrokkana og byrja svitna eins og svín. Ég eiginlega get ekki sagt neitt sérstakt um hana en ég get sett myndir sem ég stal heiðarlega af henni Ingunni, vonandi hafið þið gaman af. http://www.elfyourself.com/?id=1130063934 hahah Jólin eru að koma 
Kristín<3
»
22.11.2007 14:03:00 / -ftw-
-This Is Now - Ill nino( 8 ) Jólin bara að koma ha ? Eða það held ég samkvæmt öllum búðum sem maður sér, öllum auglýsingum, mörgu rugluðu fólki hérna á vistinni. Það er ekki kominn desember gott fólk. En þið getið allveg haft þetta eins og þið viljið, persónulega þá er ég komin í meira jólaskap en ég hef gert síðustu ár. Veit ekki allveg hvað veldur þessum óvænta spenningi svona allt í einu en þetta legst vel í mig. Fólk,, ég er uppgefin. Ég geri ekki neitt, ég nenni ekki að gera neitt og samt sit ég hérna klukkan að ganga 2 og ég get ekki beðið eftr því að fara að sofa. Hah eitthvað er ekki rétt. Núna er allt svo endalaust og sífeldar endurtekningar, sama rútínan á morgunn og á hinn og hinn. Fólki finnst virkilega skrítið að framhaldskólanemar séu í stærsta áhættu hópnum að verða þunglindir ? En ég sé í ljósið!!! Aðeins 6 dagar eftir og 2 lítil próf, sem er bara nákvæmlega ekki neitt. En svo hugsar maður lengra.. og þá er maður að fara að ganga í gegnum þetta endalausa, þessar endurtekningar, þetta brjálæði aftur eftir jól. Af hverju er maður að hafa fyrir þessu ? Hver ert þú, hvað villtu ? Rugl bugl sull... búin að missa það búið bless  Ég, Ingunn og María gerðum óafenga kokteila í skólanum glæsilegir
Kristín<3
»
19.11.2007 15:28:05 / -ftw-
--    Góðan daginn þið mig langar til að segja ykkur að núna á laugardaginn þá áttum ég og Alli hálfsárs afmæli : ) Til hamingju ástin mín. Þá fannst mér vera helvíti góð ástæða til að fara heim og dekra við kallinn. Svo ég byrjaði að plana og loks ákvað ég að ég myndi elda handa honum snigla(ég veit hvað þið eruð að hugsa ,,hvað er að henni snigla?” en comon frakkar éta þetta eins og herramannsmat svo af hverju ekki?) og kaupa eitthvað skemmtilegt í Adam og Evu, en ef að ég hefði vitað að þetta myndi allt klúðrast þá hefði ég frekar bara keypt súkkulaði.. Fyrsta lagi þá voru ekki til sniglar í Hagkaup þá var ég svo fúl að ég keypti mér skó aha Og svo fórum við stelpurnar í Adam og Evu og skoðum allt hátt og lágt og loksins ákveð ég mig og fer að borga þetta. Ekki heimild. Okey slepptu þessu bara þá hlýt ég að eiga efni á þessu. Ekki heimild. Fór ég í vasann minn og dró upp 1000 kall og sagði henni að prófa aftur. Ekki heimild. Þá vissi ég að ég væri ekki í góðum málum. Ég vissi að ég gæti nú ekki farið tómhent eim svo ég keypti jarðarber, súkkulaði og rjóma(eða Egill reyndar hih) Og hvað gerði ég ? Ég að sjálfsögðu gleymdi þessu í ískápnum á vistinni.. (y)? Svo ég fór heim með ekki neitt en mér var nú alveg fyrirgefið það sem betur fer. Svo þegar Alli fór að vinna þá fór ég á rúntinn með Guðna og Hlyn til að fá update á Vopnafjarðarslúðrinu, og var það mjög fróðlegt. Svo fór ég til tvíbbana minna og fékk mér þessa ljúffengu berjadrullu með ís sem Berglind bjó alveg sjálf til. Við horfðum mjög mikið á High School Musical II sungum með og dönsuðum og gagngrýndum. Niðurstaðan var sú að þessi mynd er svo hallærisleg að hún er góð. Haha ég og Berglind fórum svo útí hornið okkar fræga og hittum þar Guðbjörn og Steina, hressa að vanda, okey til að gera langa sögu stutta þá fór ég svo á rúntinn með Láru og Smára og svo til Alla að sofa. Svo loksins kom Alli heim og við höfðum það svo rosalega kósí og æðislegt. Um kvöldið gerði ég nákvæmleg ekki neitt í þessu skítaveðri. Fór í mat til mömmu, hékk í tölvunni og lét mér leiðast,, svo kom Hlynur með þá æðislegu hugmynd að við gætum farið út í snjókast( sem var bara trick til að fá mig út, sem sorglega virkaði).. ég hélt að hann væri algjörlega búinn að missa það enda klukkan 2, en svo fór ég út og hann líka en ekki á sama tíma þannig við stóðum þarna hvort í sínu lagi eins og fávitar. Misheppnuð? Ekkert er vitað meira um sjóferð þá. Báða þessa daga var Alli að vinna frá 8-8, þannig þetta varð ekki alveg beint þessi rómantíska helgi sem ég var búin að sjá fyrir mér. En bíddu bara mér dettur eitthvað annað skemmtilegt í hug: ) Er núna farin í minn fyrsta ökutíma yeahh! Ingunn vildi koma þessu á framfæri
»
13.11.2007 21:19:37 / -ftw-
Hey yoll! Vala situr mér að hægri hönd og er að gagngrína mig fyrir minn blogg stíl.. og hvað er síðan þín?? Hahaha en ég get svosem skilið hana ég er búin að vera 17 min að reyna að finna eitthvað áhugavert að blogga um. Hvað er ég komin með? VÖLU! Það er ekki svo slæmt er það.. hjahja og Dagný skýst innum hurðina með stæl. Velkomin Dagný. Já gott fólk ég held að ég verði bara að viðurkenna það ég hef EKKERT að blogga um. Samt held ég áfram,, þið fílið þetta. Berglind sagt*: Hey ég skal kyssa fætur þína þegar ég sé þig næst. *msnið mitt er á þýsku
Bara svo þú svíkir þetta ekki ástin. Ég fór í Hókí póki í gær með 4 manneksjum og gítarspili undur, very fun (y) Kristín<3
»
11.11.2007 15:36:42 / -ftw-
Fólk, hvernig er hægt að halda í peninginn sinn hérna á Akurey ri ?? Hann bara hverfur einn tveir og þrír. Andskotin hafi það, en ég ætla ekki í dag að væla yfir því hvað allt er dýrt og ömurlegt heldur ætla ég að segja ykkur frá helginni minni sem er nú senn á enda. Þetta byrjaði allt á því að ég, Bjarki, Þórgunnur, Ingunn, Símon og Emma fórum á Bautann og fengum okkur fínt fínt að borða svart fugl og læti. Umræðuefnið var mjög áhugavert allt frá 30 ára karlmönnum sem fíla það að senda litlum stelpum myndbönd af sér runka sér og annað skemmtilegt til háalvarlegra pólitískra umræðna. Svo að sjálfsögðu þurftum við að toppa þetta og fá okkur kaffi á Bláu Könnunni, ískaffi og læti. Við vorum eins og hefðarfólk Við fórum sv o í bíó á einhverja hryllingsmynd, einhverja hlutavegna þá voru sumir sem hættu ekki að hlægja alla myndina en ég skal segja ykkur það ég hló ekki.. Eftir smá rölt var svo haldið heim. Dagur 2, Símon kom til okkar stelpanna[Ingunnar&Þórgunnar] fyrir allar aldir og ég var komin á svo mikið skrið að ég krafist þess að við myndum horfa á einhverja hryllingsmynd, svo við gerðum það eftir mjög misheppnaða tilraun til að vekja Bjarka.. Dagurinn var ekkert mjög spennandi svosem, hápunkturinn var samt þegar hún Þórgunnur birtist allt í einu inní herberginu mínu með ost og vínber ! Mér leið eins og prinsessu. Svo kom kvöldið loksins, svo við vopnfyrðingar[egill,bjarki,gunnar,ingunn,þórgunnur og ég] klæddum okkur í okkar fínasta púss og fórum í party til Mæju. Fórum þar í drykkjuleik og allt í einu var bara geðveikt gaman! ;P Bjarki fór að henda köttum útum allt eins og þeir væru handboltar Ingunn var í fullu fangi að hlaupa á eftir þeim og grípa þá. Ég lagði mig. Svo komu fleiri Vopnfyringar Símon og Adam og eftir það þá fór allt smátt og smátt í móðu.
Svo eru fleiri skemtileg smáatriði í slúðrinu Verði ykkur af góðu. Kristín<3
»
09.11.2007 12:59:11 / -ftw-
Núna hef ég séð það, lærdómur bókstaflega slekkur algjerlega á heilanum í ungum nemendum í MA. Our dear loved Vala Karen Gunnarsdóttir er núna búin að sleppa 4 síðustu þáttum af nágrönnum til að vera að læra og ekki hefur það farið vel með hana. Núna skilur hún ekki einföldustu hluti sem eiga sér stað í samskiptum, Linda mamma Bjögga hvað ?? Ég hef áhyggjur Vala.  Í gær var Muggison(hvernir skrifar maður þetta Þórgunnur?) Allavegna þá var komin heitir spenningur fyrir að fara á útgáfutónleikana hans á Græna Hattinum, ég og Þórgunnur klæddum okkur í hennar fínasta púss og tróðum Bjarka á milli handakrikana okkar og lögðum af stað. Þórgunnur var orðin svo spennt að hún sagði á leiðinni að ef við kæmumst ekki þá ætlaði hún að fara í dóp, byrja að selja sig og við ættum að taka myndir af henni til að fá pening. Svo var uppselt.. en aldrei stendur hún við orð sín. Bjarki fór grátandi heim og ég og Þórgunnur fórum þá á rúntinn með Aðalbjörgu og Sverri? Áhugaverður rúntur enduðum uppí Kjarnaskó held ég og skautuðum þar á bílnum í eitthverri rosalegri brekku, ég var hrædd um líf mitt. But we did it! Síðan hittum við hann Símon og dróum hann uppá vist með okkur og horfðum á þarna Texas eitthvað sög blah man ekki hvað hún heitir.  Enn nú í kvöld á að vera gaman, ég og vinir mínir erum að fara á Bautan og fá okkur fínt að borða, fara í bíó og svo er planið að djamma af okkur rassgatið : D Vertu memm Kristín<3
»
31.10.2007 14:02:00 / -ftw-
Er Þórunnur karlmaður ? *-)  Þetta blessaða leti líf getur stundum verið of einhæft svo hvað gerir maður í skamdeginu til að lífga uppá tilveruna? Nú auðvitað treður ananashaus á hurðarhúninn hjá nágrönnunum Reyndar datt mér þetta ekki upprunalega í hug. Fann þessa elsku í sturtunni minni. Allavegna þá komum við stelpurnar með annan herbergishrekk svipaðan Post-It slysinu, en ekki var þessi eins skemtilegur. Hvað um það þá fórum við niður til Bjarka og Egils klukkan 2 um nóttina og lokuðum þá inni með dagblöðum Hahah við vorum svo miklir laumupúkar þetta var allveg dásamlegt. Svo hérna fór ég heeeeeeeeim Hitti hann Alla minn, svo átti hún móðir mín afmæli [ég glæsileg o g gleymdi því], Amma mín var að gefa út bók svo ég og fjöldskyldan skeltum okkur til Egilstaða til að fara í bóka party En sælan var ekki löng og brunað var heim með Ómri og ungum snátum. Þegar á vistina var komið var tekið á móti mér með hrópum og köll um, ljúfengum veitingum. Ignunn og Þórgunnur eru bestar. Eftir það allt saman þá fékk ég rosalega gott nudd, sem ég reyndar komst að væri lýsisnudd.. Svo núna lykta ég eins og fiskur. Svo voru stelpurnar orðnar svo graðar að við töluðum ekki um neitt annað en kynlíf þanga til við sofnuðu,, Og núna fyrir ykkur sem eruð svo miklir helvítis nördar voru 10 villur í þessu bloggi. Viljiði ræða það eitthvað eða ? Ég missti af kúskó Kristín<3
»
29.10.2007 15:23:16 / -ftw-
Ég er hérna að lesa mjög áhugaverða grein um að það ætti að gera dóp löglegt á Íslandi. Þetta er eitthver maður sem heldur að það sé sniðugt fyrir fólk í neyslu að koma upp svona sérstakri aðstöðu fyrir þetta fólk. Eitthvað húsnæði þar sem þetta fólk má mæta og neyta eiturlyfja. Þeim verður útvegað hreinar sprautur og annað álíka. http://www.hugi.is/deiglan/articles.php?page=view&contentId=5344530 Hvað finnst ykkur um þetta? Haldið þið að þetta hjálpi eitthvað? Hvort haldiði að þetta muni fækka fólki sem er í þessu eða fjölga ? Í alvöru lesið þetta, það sem ég held er að enginn myndi nýta sér þetta, eða einginn myndi þora því halda bara að þetta væri eitthvað trick. En hver veit er þetta laus sem gæti virkað? Pjahhh Það er að verða svo kallt hérna, Kristínu líkar það ekki eins og svo margt annað. Til dæmis fólk sem hefur ákveðnar skoðanir um ákveðna hluti sem þau vita ekkert um og hreyta þessum skoðun framan í fólk sem veit um hvað málið snýst >.< Ég er mjög vissum að það eru fleiri samála mér með þetta.( ef einhver hefur skilið þetta þar að segja) En allavegna kaffi verið bless, Kristín<3
»
26.10.2007 16:54:43 / -ftw-

Bömmer hérna megin. Ég, Þórgunnur og Bjarki ætluðum að skella okkur í sveitina/Mývatnsveitar í bústað ástamt fleira fólki en núna voru mér að berast sú tíðindi að við förum bara ekki neitt. Er ennþá að reyna að jafna mig á þessu. En eins og vitur maður sagði þá þýðir ekkert að hengja haus yfir þessu og bara finna sér eitthvað annað að gera um helgina. Eitthver að fara til Vopnó??  Heryði mig vantar eitthverja góða myndasíðu því að myndirnar mínar eru bara byrjaðar að hverfa, eitthverjar tilögur ? Og svo hérna bara að ganni hérna í lokin þá ætla ég að setja myndbandið með Bessa og Agli... as SEXYBASTARDS Jimmy glæsilegur http://youtube.com/watch?v=-cLLaE5pYFA
!!Rúmlega mánuður eftir af skólanum gott fólk rúmlega mánuður!! Ég hef hreinlega bara ekkert um að blogga svo góða fólk ég vona að þið fyrirgefið mér fyrir blogg leysi eða innihaldslaus blogg. Þetta er bara ekkert eins auðvelt og margir halda. Eða hvað? Jahérna.. allavegna bleh Kr|5t1n<3
»
Síður: 1 2 3 ... 6
|
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 19 febrúar
Dagsetning
23. febrúar 2012
|